Nú verð ég bara að skrifa nýja færslu... því að enginn annar en
Jólasveinninn sjálfur skrifaði komment á hina færsluna, sem gerir
það bara að verkum að ég hlakka ennþá meira til jólanna

En það byrjaði nú að snjóa í gær, mér finnst það yndislegt... að
vakan og sjá að það er snjókoma úti! reyndar fylgir þessu hálka og
slabb og annað miður skemmtilegt, en það er ekkert hægt að gera í
því.. ef það snjóar verður allt svo jólalegt og flott, þannig að ég
er bara sátt með þetta... 
Fyrir utan snjóinn, þá er veðrið búið að vera klikkað undanfarna
daga, eða seinustu helgi,.. þvílíkur vindur.. ég var nú bara heima
á laugardaginn með nammi, snakk, og dvd... tók the da vinci code!
sem var bara alveg dúndurgóð... ætlaði reyndar að fara að horfa á
hana strax eftir mat, en það gekk ekki eftir, því þegar ég kveikti
á sjónvarpinu var the Pacifier með VIN DIESEL á stöð 2, og maður
slekkur bara ekkert á Vin Diesel... þannig að ég kláraði hana og
setti hina síðan í tækið 
Annars er náttúrulega helgin framundan... Hvað á að gera? Morgun
dagurinn er nú óráðinn þar sem það er spáð brjáluðu veðri í kvöld
og á morgun, þá vona ég nú að ég komist heim í kvöld, annars sjáum
við bara til... svo verða aðrir tónleikar með Herradeild PÓ á
föstudaginn.. held að það sé snilld og maður verði bara að
fara...
Laugardagurinn... starfsmannapartý hjá Olís, Markinu, og ég held
að ég skelli mér bara þangað... samt aldrei að vita hvað manni
dettur í hug
hehe...
En ætla nú samt að enda þetta núna, og benda ykkur á að ég
reyndi að setja svona myndir inn á síðuna... en það er ekki hægt að
setja hvaða myndir sem er... þetta er allavegana það sem ég gat
sett í bili... (neðst á síðunni til vinstri) nenni ekkert að skíra
myndirnar því þið vitið eflaust hverjir þetta eru ;D
hehhe...
En þangað til næst...
Maren Lind 
ps.fleiri komment svo...takk 